Næsta Vesturbrú verður 2025
Í átt að sjálfbæru Vesturlandi
Vesturbrú er sex vikna hraðall fyrir verkefni sem stuðla að sjálfbærri framtíð Vesturlands. Markmið hraðalsins er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.
Fyrir hver er Vesturbrú?
Viðskiptahraðallinn Vesturbrú er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Vesturlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja komast lengra með sín verkefni.
Sótt er um í teymum, en æskilegt er að þau samanstandi af einum til þrem einstaklingum. Teymin geta verið starfsfólk fyrirtækja, sem standa að verkefninu eða sjálfstæðir frumkvöðlar í startholunum. Hraðallinn er sérhannaður með þarfir þátttökuteymanna í huga, þannig hafa teymin áhrif á fræðsluna sem stendur þeim til boða.
Hvernig virkar
þetta?
Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Vesturlandi og víðar á einkafundum. Dagskráin samanstendur einnig af ráðgjafafundum, vinnustofum, fræðslufundum og þátttakendur mynda sterkt tengslanet sín á milli.
Hraðallinn leggur áherslu á nýjar hugmyndir og þróun fjölbreytts atvinnulífs til að stuðla að sjálfbæru Vesturlandi.
Hraðallinn er í samvinnu við RATA sem hefur undanfarin ár unnið að því að styðja við umhverfi frumkvöðla á Íslandi og hefur m.a. haldið utan um viðskiptahraðlana Sóknarfæri á Suðurlandi og Vaxtarrými í Norðanátt á Norðurlandi.
Vesturbrú fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast jafnframt þrisvar sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Vesturlandi.
Skipuleggjendur og samstarfsaðilar
Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi , Nývest og Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi.
Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.