Umsóknarfrestur vegna styrkja til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði er 15. júní

Við minnum á umsóknarfrestinn vegna styrkja til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði sem er 15. júní næstkomandi.

Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.

Athygli er vakin á að sækja ber sérstaklega um styrki í garðyrkju, skv. ákvæðum reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020. Í öðrum greinum landbúnaðar er sótt um styrki samkvæmt ákvæðum reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. júní nk. Sótt er um á Afurð.is þar sem einnig má finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn.

Picture of Nýsköpunarnet Vesturlands

Nýsköpunarnet Vesturlands

Deila:

Facebook
Twitter
LinkedIn

Tengdar fréttir

Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á

Byggðaþróun – styrkir til meistaranema

Nývest vekur athygli á að nú er opið fyrir umsóknir um styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdu lokaverkefni á sviði byggðaþróunar. Byggðastofnun auglýsir eftir