Tengja saman rótgróin fyrirtæki og frumkvöðla

Drift EA hrindir af stað Ignite Nordic á Íslandi – samstarfsverkefni sem tengir frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila á landsbyggðinni.
Drift EA hefur formlega hleypt af stokkunum Ignite Nordic á Íslandi, nýju samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að efla nýsköpun og auka samkeppnishæfni fyrirtækja með því að tengja frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila.
Kjarni verkefnisins er að skapa vettvang þar sem fyrirtæki og stofnanir geta fengið aðstoð við að takast á við raunverulegar áskoranir með nýjum og framsæknum lausnum. Um leið fá frumkvöðlar tækifæri til að þróa og prófa lausnir sínar í samstarfi við raunverulega viðskiptavini.
Ignite Nordic hefur jafnframt það markmið að auðvelda sprotafyrirtækjum að komast í samband við sína fyrstu stærri viðskiptavini. Með verkefninu gefst rótgrónum fyrirtækjum og stofnunum þannig tækifæri til að nýta nýsköpun til að þróa starfsemi sína, á sama tíma og frumkvöðlar fá mikilvægt tækifæri til að byggja upp reynslu, tengsl og viðskiptatækifæri.
Verkefnið er leitt af Drift EA á Akureyri í samstarfi við norræna samstarfsaðila, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Háskólafélag Suðurlands (HFSU), KLAK – Icelandic Startups, Sjávarklasann, IceBAN – samtök englafjárfesta á Íslandi og Fjársýsluna.
Með þátttöku SSV í verkefninu skapast tækifæri til að styrkja nýsköpunarumhverfi á Vesturlandi og tengja saman fyrirtæki á svæðinu og frumkvöðla með nýjar lausnir. Slík tenging getur stuðlað að fjölbreyttara atvinnulífi, aukinni verðmætasköpun og bættri samkeppnisstöðu fyrirtækja á landsbyggðinni.
Ignite Nordic er fjármagnað af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Drift EA, SSV, SSNE og HFSU.
 
Þátttakendur verkefnisins á vinnufundi með Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra í húsnæði Driftar á Akureyri. Helga Guðjónsdóttir og Sigursteinn Sigurðsson, starfa að verkefninu fyrir hönd SSV og tóku þátt í fundinum.
Picture of Nýsköpunarnet Vesturlands

Nýsköpunarnet Vesturlands

Deila:

Facebook
Twitter
LinkedIn

Tengdar fréttir

Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á

Byggðaþróun – styrkir til meistaranema

Nývest vekur athygli á að nú er opið fyrir umsóknir um styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdu lokaverkefni á sviði byggðaþróunar. Byggðastofnun auglýsir eftir

47 UMSÓKNIR BÁRUST Í STARTUP LANDIÐ

Alls bárust 47 umsóknir í Startup Landið, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni en umsóknarfrestur var til miðnættis þriðjudaginn 1. september. Umsóknir bárust víðs