Opið fyrir umsóknir í Startup Landið til 1. september

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Landið sem haldinn verður 24. september til 5. nóvember 2026.

Hraðallinn er ætlaður einstaklingum og teymum með nýsköpunarhugmyndir á landsbyggðinni sem vilja þróa þær áfram með markvissri leiðsögn, fræðslu og stuðningi frá reynslumiklum leiðbeinendum og sérfræðingum úr atvinnulífinu.

Í Startup Landinu fá þátttakendur tækifæri til að vinna markvisst að sínum verkefnum, móta viðskiptahugmyndir, þróa viðskiptamódel og efla tengslanet sitt. Áhersla er lögð á hagnýta vinnu, skapandi hugsun og að styðja frumkvöðla við að koma hugmyndum sínum á næsta stig.

Hraðallinn er samstarfsverkefni landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga um land allt og var haldinn í fyrsta sinn árið 2025. Markmiðið er að styðja við nýsköpun á landsbyggðinni og auka sýnileika hennar

Umsóknarfrestur er til 1. september og nánari upplýsingar má finna á startuplandid.is.

Picture of Nýsköpunarnet Vesturlands

Nýsköpunarnet Vesturlands

Deila:

Facebook
Twitter
LinkedIn

Tengdar fréttir

Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á

Byggðaþróun – styrkir til meistaranema

Nývest vekur athygli á að nú er opið fyrir umsóknir um styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdu lokaverkefni á sviði byggðaþróunar. Byggðastofnun auglýsir eftir

47 UMSÓKNIR BÁRUST Í STARTUP LANDIÐ

Alls bárust 47 umsóknir í Startup Landið, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni en umsóknarfrestur var til miðnættis þriðjudaginn 1. september. Umsóknir bárust víðs