Nýsköpun í vestri: Frumkvöðla og fyrirtækjamót á Vesturlandi

Frumkvöðla- og fyrirtækjamótið Nýsköpun í vestri verður haldið föstudaginn 29. september kl. 10-18 í Hjálmakletti í Borgarnesi. Mótið opið öllum þeim sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, umhverfismálum og sjálfbærni.

Markmið Nýsköpunar í vestri er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.

Dagskráin er blanda af fræðslu, vinnustofum, reynslusögum og tengslamyndun. Þátttakendur munu þróa og vinna með hugmyndir, læra af reyndum frumkvöðlum og kynnast nýju fólki. Hluti af dagskránni er úthlutun atvinnu- og nýsköpunarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og gefst þátttakendum tækifæri til að spjalla við styrkhafa. Nýsköpunarrýmið Kvikan verður heimsótt og dagurinn endar með léttum veitingum og stefnumóti.

Þátttaka í Nýsköpun í vestri er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig til að áætla veitingar og minnka matarsóun. Nánari upplýsingar má einnig finna á Facebook.

Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.

Picture of Nýsköpunarnet Vesturlands

Nýsköpunarnet Vesturlands

Deila:

Facebook
Twitter
LinkedIn

Tengdar fréttir

Gervigreind og styrkumsóknir

Næsti fyrirlestur Forvitinna frumkvöðla 4. mars mun fjalla um það hvernig hægt er að nýta gervigreind við gerð styrkumsókna. Atli Arnarson, sérfræðingur hjá Tækniþróunarsjóði mun

Upptökur af erindum á örfundi Nývest

Föstudaginn síðastliðinn, 14. febrúar, hélt Nývest opin örfund á netinu þar sem fengnir voru þrír frábærir frumkvöðlar úr nýsköpunar umhverfi Vesturlands. Að loknum erindum hófumst