Umsóknarfrestur fyrir styrki til Atvinnumála kvenna
Vinnumálastofnun/félags-og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2024 lausa til umsóknar
Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.
Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.
- Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
- Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
- Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
- Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
- Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000.
Umsóknarfrestur er frá 1.febrúar til og með 7.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is
Þær sem fá samþykktan styrk til gerðar viðskiptaáætlunar munu fá tækifæri til að taka þátt í fyrirtækjasmiðju.
Keppt verður um verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina en dómnefnd mun meta kynningar þátttakenda. Nánari tilhögun verður kynnt síðar.
Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla.
Hægt er að bóka viðtal á heimasíðunni hjá verkefnastjóra sem gefur nánari upplýsingar.