atvinnumál kvenna

Flokkar

Date

feb 01 2024 - mar 07 2024
Expired!

Time

All Day

Umsóknarfrestur fyrir styrki til Atvinnumála kvenna

Vinnumálastofnun/félags-og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2024 lausa til umsóknar

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000.

 

Umsóknarfrestur er frá 1.febrúar til og með 7.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Þær sem fá samþykktan styrk til gerðar viðskiptaáætlunar munu fá tækifæri til að taka þátt í fyrirtækjasmiðju.

Keppt verður um verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina en dómnefnd mun meta kynningar þátttakenda. Nánari tilhögun verður kynnt síðar.

Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla.

Hægt er að bóka viðtal á heimasíðunni hjá verkefnastjóra sem gefur nánari upplýsingar.