Flokkar

Date

sep 29 2023
Expired!

Time

10:00 - 18:00

Nýsköpun í Vestri: Frumkvöðla – og fyrirtækjamót á Vesturlandi

Hefurðu áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi en veist ekki hvar þú átt að byrja? Mættu á frumkvöðla- og fyrirtækjamótið „Nýsköpun í vestri“ og taktu þátt í að fræðast um nýsköpun og frumkvöðlastarf, móta nýjar hugmyndir og kynnast nýju fólki.
Nýsköpun í vestri er stefnumót nýrra og reyndra frumkvöðla og rótgróinna fyrirtækja, auk allra þeirra sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Stefnumótið verður 29. september milli kl 10:00 – 18:00 í Hjálmakletti, Borgarnesi. Dagskráin er blanda af fræðslu, vinnustofum, reynslusögum og tengslamyndun. Hluti af dagskránni er úthlutun atvinnu- og nýsköpunarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og gefst þátttakendum tækifæri til að spjalla við styrkhafa. Nýsköpunarrýmið Kvikan verður heimsótt og dagurinn endar með léttum veitingum og stefnumóti.
Markmið frumkvöðla- og fyrirtækjamótsins er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.
Öll velkomin og þátttaka er ókeypis. Skráning er nauðsynleg undir „Miðar/Tickets“ til að áætla veitingar og minnka matarsóun – ekki er nóg að setja „Going“ á viðburðinn.a
Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.