Flokkar

Date

apr 03 2023
Expired!

Time

All Day

Barnamenningarsjóður

Barnamenningarsjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum næstu fimm ár, 2019–2023, 100 millj. kr. á ári. Er því um opinbert átaksverkefni að ræða, sem gert er ráð fyrir að skjóti styrkari stoðum undir fjölbreytt menningarstarf í þágu barna og ungmenna til framtíðar.

Sjóðurinn er ætlaður starfandi listamönnum, list- og menningartengdum stofnunum, félagasamtökum og öðrum þeim er sinna menningarstarfi fyrir börn og ungmenni í samræmi við opinbera menningarstefnu. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.

 

Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2023 kl 15:00