Árnasetur er skrifstofu- og frumkvöðlasetur sem opnaði árið 2021 við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi.
Árnasetur er skrifstofu- og frumkvöðlasetur. Suðureyjar ehf. annast rekstur Árnaseturs.
Árnasetur býður nokkra möguleika sem henta mismunandi starfsemi. Unnt er að leigja sérstakt herbergi eða starfsaðstöðu í sameiginlegu rými. Einnig er unnt að leigja starfsaðstöðu tímabundið.
Innifalið í verði í öllum tilvikum er: skrifborð og stóll, nettenging í gegnum ljósleiðara, hiti, rafmagn, fundarherbergi, kaffistofa, kaffi og te.