Kynningar og fundir á vegum Rannís á Vesturlandi og í Vesturbyggð

Mennta- og menningarsvið Rannís sækir Vesturland heim, dagana 16. – 17. september og Vesturbyggð, 23. september, til að kynna ýmis tækifæri og styrki sem bjóðast í alþjóðasamstarfi.

Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana:

  • Erasmus+, áætun ESB fyrir öll skólastig, æskulýðsmál og íþróttir
  • Creative Europe, kvikmynda- og menningaráætlun ESB
  • Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar
  • Uppbyggingarsjóð EES

 

Rannís hvetur sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, íþróttafélög, fyrirtæki, ungt fólk og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og mæta. Starfsfólk okkar verður svo til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana í norrænu og evrópsku samstarfi nánar.

Vesturland

16. september

  • Kl. 12:00 – 13:15 – Opinn kynningarfundur í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Súpa í boði.
  • Kl. 16:30 – 18:00 – Opinn kynningarfundur í Amtbókasafninu, Stykkishólmi. Kaffi og með því.

17. september

  • Kl. 12:00 – 13:15 – Opinn kynningarfundur í Borgarnesi. Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands Bjarnabraut 8. Léttar hádegisveitingar.

Vesturbyggð

23. september

  • Kl. 12:00 – 13:00 – Opinn kynningarfundur á Bíldudal, á Vegamótum. Súpa í boði.
  • Kl. 16:30 – 18:00 – Opinn kynningarfundur í Félagsheimilinu á Patreksfirði. Kaffi og með því.

Starfsfólk Rannís mun einnig heimsækja skóla og fleiri stofnanir í ferðum sínum.

Skráning

Þessar ferðir eru skipulagðar í samstarfi við SSV – Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og sveitarfélagið Vesturbyggð .

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir um fundinn til Evu Einarsdóttur kynningarfulltrúa: eva.einarsdottir@rannis.is, sími: 691 3351.

Picture of Nýsköpunarnet Vesturlands

Nýsköpunarnet Vesturlands

Deila:

Facebook
Twitter
LinkedIn

Tengdar fréttir

Rafrænn kynningarfundur Startup Landsins!

Startup Landið – rafrænn kynningarfundur Rafrænn kynningarfundur Startup Landsins verður þriðjudaginn 19. ágúst kl 12:00 ! Startup Landið er nýsköpunarhraðall fyrir landsbyggðina.Við leitum að hugmyndum